Eftirlit með útlendingum

Þriðjudaginn 15. febrúar 2000, kl. 17:53:32 (4385)

2000-02-15 17:53:32# 125. lþ. 63.12 fundur 328. mál: #A eftirlit með útlendingum# frv. 25/2000, dómsmrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 63. fundur, 125. lþ.

[17:53]

Dómsmálaráðherra (Sólveig Pétursdóttir) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég furða mig mjög á þessum yfirlýsingum hv. þm. og mér finnst miður að hann sjái ástæðu til að haga orðum sínum á þennan veg. Það er reyndar vandlifað þegar það virðist vera þannig að það er alveg sama hvaða svör ég veiti við spurningum hans úr þessum ræðustól, þá telur hann þau ekki viðunandi eða ekki við hæfi í þessum sal. Ég verð bara að segja það, hæstv. forseti, að mér þykir það miður. En svona er þetta bara.