Atkvæðagreiðsla um skýrslubeiðni

Miðvikudaginn 16. febrúar 2000, kl. 13:39:54 (4392)

2000-02-16 13:39:54# 125. lþ. 64.92 fundur 316#B atkvæðagreiðsla um skýrslubeiðni# (um fundarstjórn), MSv
[prenta uppsett í dálka] 64. fundur, 125. lþ.

[13:39]

Margrét K. Sverrisdóttir:

Virðulegi forseti. Fyrsta mál á dagskrá þessa fundar í dag var hvort leyfð skyldi beiðni um skýrslu um tilfærslu á aflamarki. Ég óska eftir að fá skýringar á því hvers vegna það er ekki gert og ef þær skýringar verða ekki fullgildar þá verði það tekið fyrir.