Lúðvík Bergvinsson:
Virðulegi forseti. Ég er einn af þeim hv. þm. sem eru á þessari skýrslubeiðni og þetta þingskjal hefur verið merkt 590. Ég taldi víst að þingskjöl væru ekki merkt fyrr en þau hefðu farið í gegnum ákveðna skoðun og þá metið að þau væru þingtæk.
Ég held, virðulegi forseti, að það verði að gera miklu betri grein fyrir því af hverju þetta er tekið af dagskrá vegna þess að við getum ekki tekið þátt í því hér eða upplifað að hér séu á ferðinni einhvers konar geðþóttaákvarðanir sem mönnum kemur til hugar þegar þeir skoða málið nánar. Þá kröfu verður að gera til forsetaembættisins og þeirra sem þar ráða ferð að mál séu nægilega vel skoðuð áður en þau eru lögð fram en ekki að þau séu tekin af dagskrá án nokkurs rökstuðnings.
Virðulegi forseti. Ég tek undir að það skiptir ekki sköpum hvort þetta er samþykkt í dag eða á morgun en ég held að hæstv. sitjandi forseti ellegar aðalforseti skuldi þingheimi miklu betri útskýringar en fram hafa komið í þessu máli.