Vegáætlun fyrir árin 2000 - 2004

Fimmtudaginn 17. febrúar 2000, kl. 14:38:17 (4484)

2000-02-17 14:38:17# 125. lþ. 66.3 fundur 296. mál: #A vegáætlun fyrir árin 2000 - 2004# þál. 23/125, JB (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 66. fundur, 125. lþ.

[14:38]

Jón Bjarnason (andsvar):

Herra forseti. Það er nú svo að fjárlög eru afgreidd, það vill svo til, og þess vegna, herra forseti, er staðan sú að fjármagn til rannsókna og undirbúnings jarðgangagerðar liggur ekki fyrir í núgildandi fjárlögum til vegamála. Því miður. Við þingmenn vinstri grænna lögðum þetta til fyrir jól við afgreiðslu fjárlaga, því við sáum fram á veginn að fjármagn þyrfti til.