Vegáætlun fyrir árin 2000 - 2004

Fimmtudaginn 17. febrúar 2000, kl. 16:24:36 (4518)

2000-02-17 16:24:36# 125. lþ. 66.3 fundur 296. mál: #A vegáætlun fyrir árin 2000 - 2004# þál. 23/125, ÞKG (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 66. fundur, 125. lþ.

[16:24]

Þorgerður K. Gunnarsdóttir (andsvar):

Herra forseti. Það er afskaplega mikið ánægjuefni að heyra að tvöföldun Reykjanesbrautarinnar er áhugamál hv. þm. Ástu Ragnheiðar Jóhannesdóttur. Ég er ánægð með að velflestir hv. þm. séu komnir úr hinum klassísku kjördæmisfötum og farnir að hugsa um heildarhagsmuni, sem tvöföldun Reykjanesbrautarinnar vissulega er. Það eru heildarhagsmunir þjóðarinnar sem hafðir eru í huga þegar hún verður tvöfölduð. Svo einfalt er það.