Gunnar Birgisson (andsvar):
Virðulegur forseti. Ég ætla að taka enn og aftur undir það sem við þingmenn Reykjaness höfum verið að benda á að það þarf að flýta framkvæmdum við Reykjanesbraut. Það þarf að tvöfalda veg upp í Mosfellsbæ og við þurfum ásamt samgn. og hæstv. samgrh. að vinna að þessu máli. Núna er þetta mál komið á það mikið skrið að vegurinn er að fara í umhverfismat og hönnun. Nú eigum við bara að drífa okkur og klára þetta mál.