Vegáætlun fyrir árin 2000 - 2004

Fimmtudaginn 17. febrúar 2000, kl. 17:42:59 (4554)

2000-02-17 17:42:59# 125. lþ. 66.3 fundur 296. mál: #A vegáætlun fyrir árin 2000 - 2004# þál. 23/125, samgrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 66. fundur, 125. lþ.

[17:42]

Samgönguráðherra (Sturla Böðvarsson) (andsvar):

Herra forseti. Ég held að ekki sé rétt að kveða upp neinn dóm um niðurstöður í þessu máli. En þær tillögur sem ég hef sett fram eru alveg skýrar og klárar. Hér hafa komið fram athugasemdir en ég hef hins vegar vakið athygli á því að fram undan eru vonandi meiri framkvæmdir á Austurlandi en í nokkrum öðrum landshluta þannig að við getum ekki bæði sleppt og haldið.