Þórunn Sveinbjarnardóttir:
Herra forseti. Ég þakka hæstv. utanrrh. svörin og það er gott til þess að vita að ræða á málefni Sellafield á fundi utanríkisráðherra Bretlands og Íslands í London á föstudaginn kemur en mig langar að spyrja hæstv. utanrrh. hvaða kröfur ríkisstjórn Íslands mun setja fram á fundinum með Robin Cook á föstudaginn.