Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir):
Virðulegi forseti. Oft byrjar ræða hv. þingmanna í utandagskrárumræðu þannig: ,,Frést hefur``. Skipta staðreyndir þá engu máli. Í greinargerð frá Sjúkrahúsinu í Reykjavík sem ég las áðan stendur skýrum stöfum, með leyfi forseta:
,,Í heild stendur því alls ekki til að draga úr þjónustu við sjúklinga.``
Það er staðreynd málsins og ég held að menn skilji núna að það er aðalmálið og aðalstaðreynd málsins. Staðreynd málsins er líka sú að við höfum verið að stórauka þjónustu við geðsjúka, t.d. geðsjúk börn, ekki bara á Reykjavíkursvæðinu heldur um allt land. Það stendur eftir og skiptir máli.
Virðulegi forseti. Þessi umræða hefur leitt í ljós eins og svo oft áður þegar hv. þm. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir á í hlut að það sem er gott og fer batnandi er í hennar huga vont og fer versnandi. (Gripið fram í: Þetta er rangt.) Við slíku hugarfari duga engin rök.