Guðmundur Hallvarðsson (andsvar):
Herra forseti. Við íhaldsmenn lifum tímamót tvenn. Hér stöndum við og ræðum þessi mál. Þessi till. til þál. er ekki óeðlileg þegar litið er til þess sem hefur verið að gerast á undanförnum árum. Við munum eftir hinum ströngu lögum þegar ekki var hægt að kaupa nema sterka drykki í Áfengisverslun ríkisins og það tók langan tíma að ræða hvort leyfa ætti sölu bjórs. Menn höfðu þá trú á því að einhverjar breytingar mundu þá gerast í neysluvenjum Íslendinga og ég held að það hafi sýnt sig að það hafi gerst. Er ég þá ekki að tala um hvort aldursmörk hafi færst neðar eða ofar.
Þess vegna hlýt ég að horfa ekki neikvætt á þetta mál en vildi hins vegar benda flutningsmönnum á texta þessarar þáltill.:
,,Alþingi ályktar að fela fjármálaráðherra að skipa nefnd er vinni að endurskoðun reglna um sölu áfengis svo að heimila megi sölu á léttum vínum og bjór í matvöruverslunum.``
Mér finnst að þarna sé eiginlega búið að gefa nefndinni fyrir fram niðurstöður um að hverju hún eigi að vinna. Hvernig á þá að velja alþingismenn í þessa nefnd? Eigum við þá að leita að þeim jákvæðu til þess að vinna að þessu eða hvernig ætla menn að halda á? Mér finnst þetta vera hnökri á þessari þáltill. Að öðru leyti gæti ég tekið undir hana og það væri sjálfsagt og eðlilegt að þetta mál væri skoðað.
Í annan stað vil ég benda á þann vanda sem við stöndum frammi fyrir varðandi vínveitingar og aldursmörk inni á veitingahúsum. Bannað er að selja fólki undir tvítugt áfengi en ef það er 18 ára má það fara inn á áfengisstaðinn. Við erum því í miklum vanda þarna og mikilli mótsögn. Ég tel að með þeirri breyttu skipan sem orðið hefur hljótum við að horfa á þetta jákvætt. Í annan stað af því það hefur komið fram að menn sjá að hér muni áfengisbölið tröllríða húsum held ég að það hljóti að vera hér eins og annars staðar erlendis að stórmarkaðarnir verða auðvitað með sérverslanir innan sinna verslana og áfengi yrði þá ekki afgreitt af unglingum.