Reglur um sölu áfengis

Þriðjudaginn 22. febrúar 2000, kl. 15:44:02 (4667)

2000-02-22 15:44:02# 125. lþ. 68.5 fundur 149. mál: #A reglur um sölu áfengis# þál., BH (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 68. fundur, 125. lþ.

[15:44]

Bryndís Hlöðversdóttir (andsvar):

Herra forseti. Ég taldi rétt að draga þetta fram og bendi á það að þeir sem vilja auðvelda aðgengi á borð við það sem fram kemur í tillögunni eru ekki þar með fylgjandi því að ekkert eftirlit eigi að vera með slíkri sölu. Ég vildi einungis draga þetta sjónarmið fram og í þeim tilgangi einnig að reyna að halda umræðunni á þeim nótum að hún verði málefnaleg. Ég er ekki að segja að hv. þm. hafi ekki gert það en hún hefur greinilega misskilið tillöguna að þessu leyti. Hún sagði að ekkert benti til þess að við vildum hafa eftirlit með þessu en það er heldur ekkert í tillögunni sem segir að við viljum ekki hafa það.