Flm. (Lúðvík Bergvinsson) (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Ástu Möller fyrir góða og málefnalega ræðu. Ég kem fyrst og fremst upp til þess að skýra örfá atriði sem mér fannst hv. þm. væri ekki alveg með á hvert við erum að fara og það er kannski ekkert skrýtið því að ekki er fjallað um það í tillögunni.
Eins og hv. þm. Bryndís Hlöðversdóttir kom að áðan erum við ekki að leggja til að sérstök leyfi verði afnumin til sölu áfengis, það er langur vegur þar í frá. Hins vegar erum við að opna það að heimilt verði að selja m.a. léttvín og bjór. Í rauninni er tillagan orðuð með þeim hætti eins og raun ber vitni til að reyna að hafa hana eins opna og rúma og kostur er. Það er hugsun okkar í þessu. Jafnframt er það hugsun okkar í þessu máli að með því að tala einungis um léttvín og bjór erum við að tala um að breyta frá áfengisstefnu sem hefur verið rekin hér sennilega í 65 ár eða svo og viljum stíga laust til jarðar fyrstu metrana. Vel má vera að þessi hugmynd gangi ekki upp og nauðsynlegt sé að stíga stærri skref, ég skal ekkert um það segja. Til að skoða þessi mál málefnalega og af rökvísi, þá leggjum við til að sett verði á laggirnar nefnd sem hafi eins rúmt umboð og kostur er. Ég sagði líka áðan í ræðu minni að þegar við tölum um sölu á þessum vínum í matvöruverslunum, þá útilokum við ekki að slík sala geti verið í sérverslunum innan slíkra verslana ellegar í góðu samstarfi við ÁTVR, þannig að við erum kannski líka að leggja til að ÁTVR hætti nú þeim fjárfestingum að opna vínbúðir og sérverslanir út um allt land, jafnvel í samstarfi við barnafataseljendur.