Flm. (Lúðvík Bergvinsson) (andsvar):
Herra forseti. Heimsendaspárnar eru margar og miklar og án efa rétt að taka undir þær eins og hv. þm. gerði hér áðan. Ef hv. þm. hefur hins vegar hlýtt á framsögu mína í þessu máli þá gekk hún öll út á að sú áfengisstefna sem stjórnvöld hafa rekið í marga áratugi hafi leitt til þess að áfengismenning okkar er á því plani sem raun ber vitni.
Ég tek undir með hv. þm. þar sem hún sagði að bætt vínmenning væri án efa lóð á vogarskálar forvarna. Það var í raun útgangspunkturinn í framsöguræðu minni. Ég áttaði mig hins vegar ekki á því sem hv. þm. fjallaði um í seinni hluta ræðu sinnar. Þessi tillaga fjallar ekki um lækkun á áfengiskaupaaldri. Þessi tillaga fjallar ekki um það að unglingar eigi endalaust að fá aðgengi að áfengi í verslunum. Þessi tillaga fjallar ekki um að gera árás á heilbrigðisstefnu íslenskra yfirvalda.
Ég veit eiginlega ekki, virðulegi forseti, á hvaða vegferð sumir þingmenn eru í þessari umræðu. Þessi tillaga fjallar um að skipuð verði nefnd til þess að skoða þann möguleika að breyta áfengisstefnunni sem hér hefur verið rekin í áratugi. Það er tekið sem dæmi að kanna mætti hvort heimila ætti sölu léttra vína og bjórs í matvöruverslunum.
Ég sagði líka í framsöguræðu minni að enginn væri að ýta ÁTVR út af borðinu. Til þess að ná þessum markmiðum kæmi hins vegar vel til álita að þær sérverslanir sem komið yrði upp yrðu í verslunum með samstarf við ÁTVR. Það var aldrei slegið út af borðinu. Ég bið hv. þm. sem taka þátt í þessari umræðu að tala um málið eins og það var lagt upp. Það er engin tilviljun að málið er lagt upp í þessari tillögu eins og raun ber vitni. Það er fyrst og síðast til að loka ekki neinum möguleikum en halda þessum möguleikum opnum. Markmiðið er fyrst og fremst að endurskoða og endurskipuleggja þá áfengisstefnu sem hér hefur ríkt í 65 ár eða frá lokum bannáranna. Það er kjarni málsins.