Lúðvík Bergvinsson:
Virðulegi forseti. Ég kem upp fyrst og fremst til þess að fagna þeirri yfirlýsingu hæstv. viðskrh. að hún hyggist ekki selja þessa verksmiðju strax, a.m.k. ekki fyrr en umhverfi hefur skapast hér fyrir ákveðna samkeppni. Ég tek undir það með henni að ríkiseinokun er þó skömminni skárri en einkaeinokun af tveimur slæmum kostum. Ég fagna því sérstaklega þessari yfirlýsingu hæstv. ráðherra.