Fyrirspyrjandi (Helga A. Erlingsdóttir):
Virðulegi forseti. Mjög víða um land hefur enn ekki verið lagt þriggja fasa rafmagn. Miðað við þær upplýsingar sem ég hef fengið eru ekki áætlaðar breytingar í þeim efnum nema þar sem þarf að endurnýja línur vegna ísingarhættu og vegna þess hve lélegar þær eru. Það skiptir miklu máli að eiga aðgang að þriggja fasa rafmagni, sérstaklega fyrir þá sem vilja koma á fót atvinnustarfsemi þar sem er brýnt að eiga góðan vélakost. Þær vélar sem kalla má iðnaðarvélar eru flestar gerðar fyrir þriggja fasa rafmagn. Þær breytingar sem þarf að gera svo hægt sé að nota vélarnar kosta bæði fyrirhöfn og peninga.
Á venjulegum búum þarf að nota mikið af tækjum til nútímabúskaparhátta. Þær vélar og tæki sem bændur fjárfesta í þar sem er einfasa rafmagn þurfa að vera stærri og öflugri, þau eru dýrari til að ná þeim afköstum sem þarf vegna t.d. lágrar spennu, en um leið þurfa vélarnar meira viðhald og endast skemur.
Nútíminn kallar á aukna og fjölbreyttari þjónustu af ýmsum toga um allt land. Því er brýnt að koma þessum málum í lag. Ein leið til atvinnusköpunar í dreifbýli gæti verið sala á heimaraforku til samveitna. Nokkuð margir bændur og aðrir ábúendur jarða búa við góð skilyrði til virkjunar fyrir heimavatnsaflsstöðvar án þess að framkvæmdir þurfi að raska umhverfinu á nokkurn hátt. Þessar stöðvar geta sumar hverjar framleitt miklu meira rafmagn en viðkomandi býli þarf á að halda. Þarna má eygja leið til atvinnusköpunar og bættrar afkomu, þ.e. með því að selja umframorku. Mér skilst að það gæti verið hagkvæmt fyrir báða aðila, kaupanda og seljanda svo sem á jaðarsvæðum, þar komi sér vel aukin orka. Til þess að þetta sé raunhæfur möguleiki þurfa raforkulínur að vera fyrir þriggja fasa rafmagn.
Virðulegi forseti. Fyrirspurn mín til hæstv. iðnrh. er á þskj. 608. Hún hljóðar svo, með leyfi forseta:
,,Hvað líður vinnu nefndar um þriggja fasa rafmagn í samræmi við þingsályktun sem samþykkt var á 123. löggjafarþingi (þskj. 1128, 204. mál) þar sem Alþingi fól ríkisstjórninni að skipa nefnd til að gera úttekt á því hve mikið vantaði á raflagnir fyrir þriggja fasa rafmagn í landinu, meta þörf atvinnulífs á landsbyggðinni fyrir þriggja fasa rafmagn og leggja mat á kostnað við að tryggja öllum landsmönnum aðgang að því?``