Jónas Hallgrímsson f. HáS, Sigríður Ingvarsd. f. HjálmJ

Fimmtudaginn 24. febrúar 2000, kl. 10:30:54 (4796)

2000-02-24 10:30:54# 125. lþ. 71.95 fundur 348#B Jónas Hallgrímsson f. HáS, Sigríður Ingvarsd. f. HjálmJ#, Forseti HBl
[prenta uppsett í dálka] 71. fundur, 125. lþ.

[10:30]

Forseti (Halldór Blöndal):

Borist hafa tvö bréf. Hið fyrra er dagsett 24. febrúar 2000 og hljóðar svo:

,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með vísan til 2. mgr. 53. gr. þingskapa að óska þess að 1. varaþingmaður Framsfl. í Austurl., Jónas Hallgrímsson, framkvæmdastjóri Seyðisfirði, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.

Halldór Ásgrímsson.``

Jónas Hallgrímsson hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa.

Hið síðara er dagsett 23. febrúar 2000. Það hljóðar svo:

,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur leyfi ég mér með vísan til 2. mgr. 53. gr. þingskapa að óska þess að 1. varaþingmaður Sjálfstfl. í Norðurl. v., Sigríður Ingvarsdóttir umboðsmaður, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.

Hjálmar Jónsson, 1. þm. Norðurl. v.``

Kjörbréf Sigríðar Ingvarsdóttur hefur þegar verið rannsakað og samþykkt, en þar sem hún hefur eigi tekið sæti á Alþingi fyrr ber henni að undirrita drengskaparheit.