Katrín Fjeldsted (andsvar):
Herra forseti. Ég held að umhvrh. hafi aðeins misskilið það sem ég sagði. Ég átti ekki við að hún sérstaklega sem ráðherra væri í stríði við almenning. Ég var að tala um stjórnvöld almennt og það sem gerðist á Alþingi fyrir áramótin.
En úr því að ráðherrann ,,ekki spurði mig`` hvort ég væri í stríði við þingflokkinn er best að ég svari því ,,ekki`` til að með helming kjósenda Sjálfstfl. í Reykjavík mér að baki og eiðstaf um að fylgja sannfæringu minni sé þingflokkurinn alveg sáttur við mína málsmeðferð.