Mat á umhverfisáhrifum

Fimmtudaginn 24. febrúar 2000, kl. 17:33:07 (4880)

2000-02-24 17:33:07# 125. lþ. 71.7 fundur 386. mál: #A mat á umhverfisáhrifum# (heildarlög) frv. 106/2000, umhvrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 71. fundur, 125. lþ.

[17:33]

Umhverfisráðherra (Siv Friðleifsdóttir) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er rétt að ég fékk þessa fyrirspurn en náði ekki að svara henni áðan. Ráðuneytið mun leitast við að reyna að hafa reglugerðina tilbúna þannig að hægt verði að skoða hana áður en lögin verða afgreidd héðan frá Alþingi. Ég vona að það takist.