Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir):
Virðulegi forseti. Það er mikilvægt að ekki sé neitt óvissuástand, hvorki á þessum stað né öðrum svipuðum en ég ætla að minna á að það hefur ekki komið til tals síðustu sjö ár neitt slíkt eins og gerðist fyrir sjö árum að talað var um að loka þessari stofnun eða breyta henni verulega. Á undanförnum fimm árum hefur verið mikill friður um þessa stofnun. Aldrei hefur komið til tals núna þó að þessi kvittur hafi komið upp að yfirvöld hefðu hugsað sér að loka henni.
En það er alveg rétt að það þarf að gera hana nútímalegri og þetta er meira félagslegs eðlis en kannski beint á vegum heilbrigðisþjónustunnar þó að við þurfum engan veginn að henda því frá okkur meðan ekki er annað ákveðið.
Eins og ég segi eru umræður í gangi um aðra heilbrigðisþætti á Suðurlandi sem geta tengst Gunnarsholti.