Tekjustofnar sveitarfélaga

Miðvikudaginn 08. mars 2000, kl. 14:58:53 (5061)

2000-03-08 14:58:53# 125. lþ. 75.6 fundur 353. mál: #A tekjustofnar sveitarfélaga# fsp. (til munnl.) frá félmrh., JónK (ber af sér sakir)
[prenta uppsett í dálka] 75. fundur, 125. lþ.

[14:58]

Jón Kristjánsson:

Herra forseti. Ég vísa því algjörlega á bug sem tilefnislausu að þessi nefnd hafi slugsað nokkuð við vinnu sína. Það er góð samstaða í nefndinni hjá fulltrúum sveitarfélaganna sem í henni eru um öll hennar vinnubrögð. Hún hefur unnið eðlilega og það er algjörlega úr lausu lofti gripið að hér sé um nokkurn hægagang að ræða miðað við þau verkefni sem fyrir liggja og um þessi vinnubrögð er algjör sátt.