Ásta R. Jóhannesdóttir (andsvar):
Herra forseti. Mig langar til að spyrja hæstv. heilbrrh. aðeins nánar út í nefndarskipunina skv. 41. gr. laganna þar sem tilnefning fjögurra nefndarmanna kemur frá Tryggingastofnun ríkisins, fjmrn., landlækni og læknadeild Háskóla Íslands og svo formaður skipaður af ráðherra. Hefur hæstv. ráðherra eitthvað velt því fyrir sér að hagsmunaaðilar, t.d. neytendur, sjúklingar eða sjúklingahópar geti eitthvað komið að nefndarvinnunni því að það eru auðvitað stórkostlegir hagsmunir fyrir sjúklinga hvernig skipast um þátttöku almannatrygginga í lyfjakostnaði og þar af leiðandi þátttöku sjúklinga í nýjum lyfjum?
Nú hefur oft viljað brenna við að ný lyf hafi verið mjög dýr og oft hefur þetta bitnað á sjúklingnum sjálfum, þ.e. þátttakan hefur oft verið allmikil. Þess vegna spyr ég hæstv. ráðherra hvort það hafi eitthvað verið hugleitt og hvort hún sjái möguleika á því að neytendur lyfjanna, sjúklingarnir eða hagsmunahópar þeirra hafi einhverja aðkomu að þessari nefndarvinnu.