Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir):
Virðulegi forseti. Ég vil þakka þá umræðu sem hefur farið fram. Það er ljóst að það er alveg sama hve mikið fjármagn við setjum til þessa málaflokks að það er aldrei nóg meðan eitt barn fellur í þessa gryfju.
Það er alveg rétt sem hefur komið fram að miklir fjármunir hafa verið lagðir á sl. ári til þessa málaflokks. Það hefur skipst á milli löggæslu og tollgæslu, meðferðarúrræða og forvarna. Það er samt ekki nóg. En það er nauðsynlegt að forgangsraða þegar við þurfum að takast á við stóran og erfiðan málaflokk og það hefur verið forgangsröðun okkar að efla forvarnir. Einmitt vegna þess að hv. þm. sem hér talaði áðan kemur frá Grundarfirði langar mig að minnast á að þar hafa menn gengið alveg sérstaklega myndarlega fram og það hefur verið gert án þess að fá nokkurt framlag frá ríkinu. Það sem þeir í Grundarfirði eru að gera er eitthvað sem ég tel að við getum lært mikið af. Þar hafa foreldrar tekið höndum saman og presturinn þar, hv. þm. sem talaði áðan, hefur verið í fararbroddi. Ég bara segi við ykkur hv. þm. að þið ættuð að kynna ykkur hvað menn eru að gera þar í forvörnum. Það er algerlega til fyrirmyndar og hefur vakið athygli víða.
Varðandi það frv. sem liggur fyrir og hefur áður verið til umfjöllunar, þá er þetta eitt af mörgum málum sem er til skoðunar en forgangurinn hefur verið þessi sem ég hef lagt upp. Við höfum verið að bæta meðferðarúrræði og síðast um áramót vorum við að opna mjög mikilvæga stofnun við Vog þar sem eru meðferðarúrræði fyrir unga fíkniefnaneytendur sem hefur verið mikil þörf á og Barnastofa er að opna ný meðferðarúrræði víða. Það er það sem hefur verið kallað geysilega mikið eftir og er mjög mikilvægt. Við höfum einnig verið að efla barna- og unglingageðdeildina því allt verður þetta að haldast í hendur.
En ég endurtek að ég þakka þá umræðu sem hefur farið fram um þetta alvörumál.