2000-03-13 15:06:47# 125. lþ. 77.92 fundur 370#B ummæli forsætisráðherra í umræðu um starfsemi og fjárreiður stjórnmálasamtaka# (aths. um störf þingsins), SighB
[prenta uppsett í dálka] 77. fundur, 125. lþ.

[15:06]

Sighvatur Björgvinsson:

Virðulegi forseti. Eins og ég gat um áðan er mjög óvanalegt að gerð sé athugasemd við fjarveru þingmanns sem er löglega forfallaður í veikindum. En eins og hæstv. forsrh. tók fram hér áðan þá var það ekki meining hans að sneiða að mér eða mínum með því. Þetta var yfirsjón hjá honum og við því er ekkert að segja.