Félagsþjónusta sveitarfélaga

Mánudaginn 13. mars 2000, kl. 19:21:00 (5200)

2000-03-13 19:21:00# 125. lþ. 77.7 fundur 418. mál: #A félagsþjónusta sveitarfélaga# (heildarlög) frv., félmrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 77. fundur, 125. lþ.

[19:21]

Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson) (andsvar):

Herra forseti. Ég hef að vísu ekki setið alveg alla ríkisstjórnarfundi, en ég minnist þess hins vegar ekki að þessi tiltekni samningur hafi verið tekinn til meðferðar í ríkisstjórninni, enda finnst mér það nú kannski ekki vera svo stórkostlegt mál að það taki því að láta ríkisstjórnina alla sitja yfir því tímunum saman.

Það er alveg rétt að ég hef lesið eitthvað af greinum og hlustað á ræður hjá hv. 13. þm. Reykv. um bölvun einkavæðingarinnar. Sumt af því hefur verið rétt, en sumt hafa verið bara tómir öfgar.