Kvótaþing, Verðlagsstofa skiptaverðs og takmörkun á flutningi aflamarks

Þriðjudaginn 14. mars 2000, kl. 16:56:51 (5250)

2000-03-14 16:56:51# 125. lþ. 78.3 fundur 400. mál: #A Kvótaþing, Verðlagsstofa skiptaverðs og takmörkun á flutningi aflamarks# skýrsl, sjútvrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 78. fundur, 125. lþ.

[16:56]

Sjávarútvegsráðherra (Árni M. Mathiesen) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Guðjóni A. Kristjánssyni fyrir að benda mér á þennan texta og efalaust verður það vandalaust fyrir mig að verða mér úti um hann. Ég efast hins vegar um að það breyti þeirri skoðun minni að fyrst og fremst sé um mál að ræða sem sjómenn og útgerðarmenn þurfi að gera út um sín á milli.