Varnarsamstarf Íslands og Bandaríkjanna

Fimmtudaginn 16. mars 2000, kl. 11:32:23 (5385)

2000-03-16 11:32:23# 125. lþ. 81.2 fundur 405. mál: #A varnarsamstarf Íslands og Bandaríkjanna# frv. 82/2000, ÞSveinb (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 81. fundur, 125. lþ.

[11:32]

Þórunn Sveinbjarnardóttir (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. utanrrh. andsvarið en ég verð þó að viðurkenna að ég er litlu nær. Gott og vel, að sjálfsögðu er það hlutverk yfirvalda hér að gæta íslenskra hagsmuna. En hvað býr að baki þessari yfirlýsingu? Það er ekki nógu skýrt í frv. Ég verð bara að viðurkenna það, herra forseti, að ég vænti þess að hæstv. utanrrh. geti skýrt það betur.