Flm. (Sigríður Jóhannesdóttir) (andsvar):
Hæstv. forseti. Það er gott til þess að vita að hæstv. utanrrh. er mér sammála um að viðhorf til umhverfismála hafa breyst. Það er náttúrlega á þeim grunni sem ég flyt mál mitt hérna. Ég hef margítrekað það að umgengni við þessi spilliefni hefur gjörbreyst, bæði af hálfu varnarliðsins og sjálfsagt líka af hálfu íslenskra verktaka á undanförnum árum vegna þess að fólk er orðið sér meðvitað um skaðsemi þeirra. Hér áður fyrr var fyrst og fremst verið að grípa til þeirra efna sem voru fljótvirkust. Það var ekki verið að spá í hvort þau væru kannski jafnframt bráðdrepandi.
Ég held að ýmsir hafi sömu sögu að segja og ég. Þegar ég, sem ung húsmóðir, var að hreinsa til í húsi mínu í kringum 1965 þá var ég fyrst og fremst að spekúlera í að hafa eitthvað sem virkaði nógu hratt og vel en ekki endilega það sem fór vel með náttúruna. Þetta voru ríkjandi viðhorf. Á þessum tíma setti herinn út í umhverfið efni sem vitað er að eru mjög skaðleg og langvirk. Ákveðnir aðilar buðust til að láta kortleggja vitneskju sína um hvar þetta hefði verið og það var ekki þegið á sínum tíma. Ég tel að þarna hafi verið farið mjög óvarlega. Það hefði þurft að þiggja þær upplýsingar sem þeir bjuggu yfir, hvort sem þetta voru Ameríkanar eða íslenskir verktakar sem þarna voru að verki. Við hljótum að standa betur að vígi ef við vitum nákvæmlega og getum kortlagt hvar þessi efni er að finna í náttúrunni á þessum svæðum.