Heimsóknir ættingja erlendis frá

Mánudaginn 20. mars 2000, kl. 15:20:05 (5453)

2000-03-20 15:20:05# 125. lþ. 82.1 fundur 389#B heimsóknir ættingja erlendis frá# (óundirbúin fsp.), utanrrh.
[prenta uppsett í dálka] 82. fundur, 125. lþ.

[15:20]

Utanríkisráðherra (Halldór Ásgrímsson):

Herra forseti. Þessi mál eru nú kannski ekki síst á vettvangi dómsmrn. en hæstv. dómsmrh. hefur upplýst mig um að reglur sem þessar séu til endurskoðunar og ég sagði hér áðan að mér fyndist sjálfsagt að taka þær til athugunar og breyta þeim. Mér heyrist á því sem hv. þm. sagði að ýmislegt mætti betur fara í því sambandi og eðlilegt að þarna verði einhver breyting á. Þarna eru, ef rétt er, mjög háar tryggingar þannig að við í ríkisstjórninni munum taka þetta til frekari athugunar. Ég segi fyrir mig, miðað við þær upplýsingar sem hv. þm. reiddi hér fram, að þá sýnist mér að þörf sé á breytingum á þessu sviði.