Guðmundur Árni Stefánsson:
Herra forseti. Mig langar að eiga orðastað við hæstv. fjmrh. og tilefnið er ítrekaðar yfirlýsingar hæstv. landbrh. í svonefndum þjóðlendumálum.
Nú er það alkunna að hæstv. landbrh., raunar ásamt hv. 1. þm. Suðurl., Árna Johnsen, gagnrýndi stefnu ríkisstjórnarinnar mjög harðlega á bændafundi á Suðurlandi fyrir ekki margt löngu. En hæstv. landbrh. hefur nú bætt í og á opinberum vettvangi um helgina og raunar í fjölmiðlum í dag hefur hann beinlínis gagnrýnt fjmrn. fyrir stefnumörkun og verklag í þessum efnum. Hann segist í viðtali hafa gert þessi mál að umtalsefni ítrekað á ríkisstjórnarfundum. Gagnrýnisefni hans eru eftirfarandi: Hann telur að formaður svokallaðra þjóðlendunefndar, sem er deildarstjóri í fjmrn., fari í offari í málinu, sé raunar vanhæfur. Ég spyr hæstv. fjmrh.: Hver eru hans viðbrögð við þessu?
Í annan stað hefur hæstv. landbrh. fullyrt að kröfur sem unnar eru og eru settar fram í nafni hæstv. fjmrh. séu í engu samræmi við vilja Alþingis í þessum efnum. Hvert er álit ráðherrans á þessu?
Ég vil einnig velta því upp hér, herra forseti, af því að auðvitað er hæstv. landbrh. þarna að ræða um málefni sem eru mjög á hans borðum, þ.e. málefni bænda í landinu: Er hér e.t.v. um að ræða djúpstæðari ágreining en ætla mætti í fljótu bragði, þ.e. milli einstakra ráðherra? Er um að ræða mismunandi stefnumörkun ríkisstjórnarflokkanna í þessu sambandi? Er djúpstæðari ágreiningur en í fljótu bragði mætti virðast?