Svar við fyrirspurn

Þriðjudaginn 21. mars 2000, kl. 13:35:54 (5506)

2000-03-21 13:35:54# 125. lþ. 83.92 fundur 394#B svar við fyrirspurn# (aths. um störf þingsins), menntmrh.
[prenta uppsett í dálka] 83. fundur, 125. lþ.

[13:35]

Menntamálaráðherra (Björn Bjarnason):

Herra forseti. Ég tel að þessum spurningum sé svarað með fullnægjandi hætti. Eins og fram kom hjá hv. þm. þá kann að vera að spurningarnar séu ekki nógu skýrar þannig að ég hvet hv. þm. til þess að leggja fyrir mig nýjar spurningar sem eru þá skýrari svo ég geti svarað með þeim hætti sem hann óskar.