Fullgilding samnings um framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna

Þriðjudaginn 21. mars 2000, kl. 14:33:08 (5517)

2000-03-21 14:33:08# 125. lþ. 83.4 fundur 206. mál: #A fullgilding samnings um framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna# þál. 6/125, dómsmrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 83. fundur, 125. lþ.

[14:33]

Dómsmálaráðherra (Sólveig Pétursdóttir) (andsvar):

Herra forseti. Hv. þm. Sighvatur Björgvinsson spurði á þá leið hvort utanrrh. hefði verið gerð grein fyrir andstöðu í þingflokki sjálfstæðismanna varðandi Schengen-málið. Ég get að sjálfsögðu ekki svarað fyrir hæstv. utanrrh. að öðru leyti en því að um er að ræða tillögu frá ríkisstjórninni sem er fullt samkomulag um. Á því leikur enginn vafi.