Heilbrigðisþjónusta við unga afbrotamenn

Miðvikudaginn 22. mars 2000, kl. 15:16:05 (5650)

2000-03-22 15:16:05# 125. lþ. 85.7 fundur 433. mál: #A heilbrigðisþjónusta við unga afbrotamenn# fsp. (til munnl.) frá dómsmrh., félmrh.
[prenta uppsett í dálka] 85. fundur, 125. lþ.

[15:16]

Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson):

Herra forseti. Ég vil láta það koma fram við umræðuna að ég tel að það sé vel séð fyrir sálfræðiþjónustu og heilbrigðisþjónustu á meðferðarheimilum á vegum Barnaverndarstofu, þannig að enginn misskilningur sé þar um. Verulegum fjármunum er varið til þessara þátta í meðferð skjólstæðinganna á meðferðarheimilunum.