Stofnun hlutafélags um Flugstöð Leifs Eiríkssonar

Fimmtudaginn 23. mars 2000, kl. 12:22:09 (5697)

2000-03-23 12:22:09# 125. lþ. 86.3 fundur 502. mál: #A stofnun hlutafélags um Flugstöð Leifs Eiríkssonar# frv. 76/2000, SighB (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 86. fundur, 125. lþ.

[12:22]

Sighvatur Björgvinsson (andsvar):

Herra forseti. Ég hef að vísu engu við orð hæstv. ráðherra að bæta nema því að við í utanrmn. munum að sjálfsögðu fylgja þessu máli vel eftir og óska eftir góðu samstarfi við hæstv. utanrrh. og ráðuneyti hans um alla þá upplýsingaöflun sem við þurfum að fara í til að komast að sem skynsamlegastri niðurstöðu í þessu máli. Ég ítreka aðeins að okkur finnst sjálfsagt og jákvætt að skoða tillögu hæstv. utanrrh. þó við höfum ekki bundið okkur til að standa með þeim í einstökum atriðum. Okkar niðurstaða mun ráðast af nánari skoðun í utanrmn.