Ögmundur Jónasson (andsvar):
Herra forseti. Inntakið í mínum málflutningi er að minna renni til samfélagsins. Ég hef á tilfinningunni að hv. þm. beini gagnrýni í andsvari til mín sem í reynd er á málflutning annarra við þessa umræðu. Ég veit að hv. þm. getur ekki komið aftur upp í andsvari en hann getur tekið aftur til máls. Hann hefur bara talað einu sinni í málinu.
Ég hefði áhuga á að heyra sjónarmið hans í þessum efnum. Er hann að tala fyrir því að flugstöðinni verði breytt í hlutafélag án þess að hún verði seld, án þess að hlutabréfin verði seld? Ég held við þurfum að fá þetta alveg skýrt.
Ég skildi það á hv. þm. núna síðast í andsvari að hann teldi ekkert sjálfgefið í því efni. Ég vildi hins vegar gjarnan heyra sjónarmið hans. Vill hann láta breyta flugstöðinni í hlutafélag þar sem umsjón með þessu fyrirtæki, þessari stofnun, er tekin frá almannavaldinu og færð í formi eins hlutabréfs undir einn mann, formann Framsfl., og þrengja þannig að lýðræðinu? Er hann að tala fyrir því? Telur hann að það eigi að ganga áfram og selja hlutabréfin í fyrirtækinu þegar fram líða stundir? Ef svo er vakna ýmsar aðrar spurningar sem ég hef áhuga á að ræða nánar við þingmanninn.
Ég bíð spenntur eftir að heyra seinni ræðu hv. þm. Einars K. Guðfinnssonar þar sem hann útlistar hugmyndir sínar í þessu efni.