Einar K. Guðfinnsson (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég fagna því að hv. 6. þm. Reykn. tók sérstaklega fram þegar hann ræddi um þingmenn Samfylkingarinnar --- Samfylkingarinnar í Reykjaneskjördæmi --- því það fór ekki fram hjá neinum sem hlustaði á ræðu hv. 2. þm. Vestf. að hann gaf dálítið annan tón en þeir sem síðar töluðu af hálfu þess flokks hér í dag. (Gripið fram í.)
Ég vil segja eitt, af því að hv. þm. kom aðeins inn á mitt mál áðan, að mér fannst hv. þm. reyndar snúa töluvert út úr. Það sem ég talaði um áðan var ekki það að formbreytingin væri forsenda þess að meira væri eftir af tekjum flugstöðvarinnar í þessari stofnun. Það sem ég var einfaldlega að segja var að menn geta náttúrlega ekki nánast í sömu andránni gagnrýnt að ekki hafi verið gengið nægilega rösklega til þess verks að greiða niður skuldir Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar, en þegar það síðan gerist við þessa formbreytingu að stærri hluti af tekjum flugstöðvarinnar fer til þess að lækka skuldirnar, þá geta menn ekki verið að gagnrýna hvort tveggja í senn, þ.e. að meiri peningar skuli fara til flugstöðvarinnar og að skuldir hafi ekki verið greiddar niður í fortíðinni.
Það var einfaldlega þetta sem ég var að segja, þ.e. að út af fyrir sig væri það mjög jákvætt að með þessu væri tryggt að flugstöðin gæti greitt hraðar niður skuldir sínar.
Hitt er svo annað mál, sem hér hefur líka verið rætt, hvort þetta fæli í sér ákvörðun um sölu hlutafjár. Ég vil einfaldlega segja að þetta frv. kveður mjög skýrt að orði í þessum efnum. Þetta frv. segir að ef menn fara í það að ætla sér að selja hlutabréf skuli sú sala og ráðstöfun vera óheimil án samþykkis Alþingis. Það er því algjörlega ótímabært að menn séu að taka neina afstöðu til þess máls hér og nú. Það mál er einfaldlega ekkert á dagskrá þessa frv. Öðru nær, þar er einfaldlega sagt að verið sé að formbeyta fyrirtækinu og fyrir því eru flutt frambærileg rök. Allar aðrar ákvarðanir bíða síns tíma.