Hlutdeild sjúklinga í lyfjakostnaði

Mánudaginn 03. apríl 2000, kl. 15:33:16 (5806)

2000-04-03 15:33:16# 125. lþ. 87.1 fundur 417#B hlutdeild sjúklinga í lyfjakostnaði# (óundirbúin fsp.), heilbrrh.
[prenta uppsett í dálka] 87. fundur, 125. lþ.

[15:33]

Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir):

Virðulegi forseti. Varðandi sveppalyfin sem hv. þm. spyr um þá er sú breyting sem gerð var um áramótin algerlega í samræmi við önnur fúkkalyf. Það er mikilvægt að hv. þm. viti það og þingheimur allur að þeir sem hafa sérstaklega lágar tekjur geta fengið undanþágu frá greiðslum og svo eru lyfjakortin við lýði sem þessir einstaklingar geta fengið sem þurfa mikið á lyfjum að halda. Þetta veit ég að hv. þm. þekkir allra manna best.