Hlutdeild sjúklinga í lyfjakostnaði

Mánudaginn 03. apríl 2000, kl. 15:35:11 (5808)

2000-04-03 15:35:11# 125. lþ. 87.1 fundur 417#B hlutdeild sjúklinga í lyfjakostnaði# (óundirbúin fsp.), heilbrrh.
[prenta uppsett í dálka] 87. fundur, 125. lþ.

[15:35]

Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir):

Virðulegi forseti. Það er sérstök reglugerð við lýði sem tekur á því ef fólk er með mjög lágar tekjur. Það getur þá fengið þessi lyf sem og önnur endurgreidd. Það er sú reglugerð sem tekur á þessu máli eins og öðrum málum hvað varðar lyf þegar fólk er með lágar tekjur og þarf mikið á lyfjum að halda.