Arnbjörg Sveinsdóttir:
Hæstv. forseti. Það eru mikil vonbrigði að fjárfestar í álveri á Reyðarfirði vilji nú snúa frá fyrri áfangaskiptingu við álversbyggingu. Það lá hins vegar fyrir á fyrri stigum umræðna við Norsk Hydro að þeir vildu fara í stærri áfanga fyrr í framkvæmdaröðinni. Þeir féllust hins vegar á byrjunaráfanga upp á 120 þús. tonn, m.a. vegna þess að Fljótsdalsvirkjun sem orkuöflun var tilbúin og lagaheimild til fyrir henni. Því hefði framkvæmdin sem heild getað farið fyrr af stað.
Það kom fram hjá Geir A. Gunnlaugssyni, framkvæmdastjóra Hæfis, á fundi á Egilsstöðum í gærkvöldi að ástæður þess að farið er fram á breytingar á framkvæmdaröð eru annars vegar að arðsemi er meiri af 240 þús. tonna álveri en 120 þús. tonna álveri. Hin ástæðan og ekki síðri er sú að fjárfestar vilja fá tryggingu fyrir að stækkun verði heimil síðar og íslensk stjórnvöld og Landsvirkjun geti afhent raforku til stækkunar álvers.
Umhverfismat mun taka a.m.k. tvö ár. Strax hefur komið í ljós í fjölmiðlum að minni andstaða verður gegn Kárahnjúkavirkjun en Fljótsdalsvirkjun enda snerist deilan um Fljótsdalsvirkjun, m.a. hér á Alþingi, um umhverfismatsferli en ekki hvort virkja skyldi. Það er augljóst að ef halda á áfram viðræðum við þá fjárfesta sem nú er verið að ræða við þarf að fá haldfastari pappír en Hallormsstaðaryfirlýsingin virðist nú vera.
Í fjárfestahópnum eru öll stærstu fjármálafyrirtæki landsins og þeirra ábyrgð er mikil. Þau munu taka á sig miklar fjárhagslegar skuldbindingar við undirbúning málsins og einnig hljóta þau að bera mikla ábyrgð gagnvart stjórnvöldum sem mikið hafa lagt á sig til að skapa það umhverfi að hægt sé að hefja framkvæmdir.
Neikvæði þátturinn við þessa breytingu á afstöðu fjárfestanna er auðvitað sá að framkvæmdinni verður frestað, til mikilla vonbrigða fyrir Austfirðinga og landsmenn alla. Þjóðhagsleg áhrif munu einnig koma seinna til en ella. Jákvæði þátturinn er hins vegar sá að álverksmiðjan verður stærri og mannaflsfrekari og hefur því mun meiri jákvæð byggðarleg áhrif þó að þau komi seinna til.