Frsm. allshn. (Þorgerður K. Gunnarsdóttir):
Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. hv. allshn. um frv. til laga um breytingu á lögum um skipulag ferðamála með síðari breytingu. Allshn. fékk þetta mál eins og lög gera ráð fyrir og nefndin sendi málið til ýmissa aðila til umsagnar og þar á meðal til hv. menntmn. Þar sem þetta mál fjallar um að flytja mál er varða menntun leiðsögumanna ferðafólks frá samgrn. til menntmrn. þótti rétt að leita umsagnar hv. menntmn.
Í umsögn menntmn. segir, með leyfi forseta:
,,Það er skilningur nefndarinnar að með þessu sé í engu verið að breyta inntaki þessa náms, sem er mjög sérhæft, né inntökuskilyrðum, þ.e. að nemendur séu 21 árs og hafi m.a. lokið stúdentsprófi. Nefndin leggur áherslu á að það sé tryggt.``
Síðan segir einnig, með leyfi forseta:
,,Nefndin telur nauðsynlegt að þessi mál verði skoðuð í heild sinni, m.a. með tilliti til staðsetningar námsins í menntakerfinu.``
Undir þessi orð hv. menntmn. tekur allshn. sérstaklega og í ljósi þessa leggur nefndin til að frv. verði samþykkt óbreytt.