Ásta Möller (andsvar):
Virðulegi forseti. Annaðhvort tala ég ekki nógu skýrt eða hv. þm. Ásta R. Jóhannesdóttir hlustar ekki á það sem ég er að segja, því að skammtímavistun er það sem spurningin snýst um. Hún snýst um að koma til móts við þessa þörf.
Það sem ég er að segja er að komið verður til móts við þá þörf með þeim úrræðum sem ég hef verið að lýsa. En ég segi hins vegar að með því að koma til móts við þessa þörf þar sem þjónustan er veitt núna í dag, þá verður ekki þörf á að setja upp sérstakt hvíldarheimili. Þar liggur blæbrigðamunurinn á því sem ég er að segja og sem hv. þm. Ásta R. Jóhannesdóttir er að segja.
Það sem skiptir máli er að koma til móts við þessa þörf, ekki að stofnað verði sérstakt hvíldarheimili þar um, heldur að foreldrar umræddra barna hafi aðgang að deild sem lítur svo á að það sé sjálfsagður hluti af þjónustunni.