Rekstur Reykjadals í Mosfellssveit

Miðvikudaginn 05. apríl 2000, kl. 14:29:15 (5934)

2000-04-05 14:29:15# 125. lþ. 91.3 fundur 449. mál: #A rekstur Reykjadals í Mosfellssveit# fsp. (til munnl.) frá félmrh., DrH
[prenta uppsett í dálka] 91. fundur, 125. lþ.

[14:29]

Drífa Hjartardóttir:

Herra forseti. Ég fagna svari hæstv. félmrh. um rekstur Reykjadals á komandi sumri. Ég hef eins og aðrir orðið mjög vör við áhyggjur þeirra sem hafa notið dvalarinnar þar og fjölskyldna þeirra. Börn og unglingar hafa notið þess svo sannarlega að vera þarna í sumardvöl og hafa nánast hlakkað til þess allan veturinn að komast í Reykjadal að sumri, þannig að ég fagna því að dvölin verður óbreytt áfram.