Þátttaka Íslands í Schengen-samstarfinu

Fimmtudaginn 06. apríl 2000, kl. 19:37:49 (6082)

2000-04-06 19:37:49# 125. lþ. 94.15 fundur 237. mál: #A þátttaka Íslands í Schengen-samstarfinu# (breyting ýmissa laga) frv. 15/2000, Frsm. ÞKG (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 94. fundur, 125. lþ.

[19:37]

Frsm. allshn. (Þorgerður K. Gunnarsdóttir) (andsvar):

Herra forseti. Ég ítreka að það er ekkert nýtt í skýrslunni. Öll þessi sjónarmið komu fram á fundi allshn. og utanrmn. í Leifsstöð sem mér skilst að hv. þm. Ögmundur Jónasson hafi ekki verið á. Þar komu þessi sjónarmið öll fram þannig að það er ekkert nýtt í þessu máli.