Stofnun hlutafélags um rekstur Póst- og símamálastofnunar

Fimmtudaginn 06. apríl 2000, kl. 20:02:10 (6091)

2000-04-06 20:02:10# 125. lþ. 94.17 fundur 289. mál: #A stofnun hlutafélags um rekstur Póst- og símamálastofnunar# (stimpilgjald) frv. 19/2000, Frsm. meiri hluta ÞKG
[prenta uppsett í dálka] 94. fundur, 125. lþ.

[20:02]

Frsm. meiri hluta samgn. (Þorgerður K. Gunnarsdóttir):

Herra forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta samgn. fyrir nál. um frv. til laga um breytingu á lögum um stofnun hlutafélags um rekstur Póst- og símamálastofnunar.

Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund m.a. Ragnhildi Hjaltadóttur frá samgönguráðuneyti. Nefndin sendi ýmsum aðilum málið til umsagnar og bárust frá umsagnir frá Verslunarráði Íslands, Sambandi íslenskra viðskiptabanka, Landssíma Íslands hf. og Seðlabanka Íslands.

Með frumvarpinu er lagt til að undanþága frá greiðslu stimpilgjalda af útgefnum hlutabréfum í Landssíma Íslands hf. og Íslandspósti hf. verði afnumin. Er það eðlilegt þar sem starfsemi þeirra er nú á samkeppnismarkaði.

Meiri hlutinn leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.

Undir þetta meirihlutaálit samgn. rita Árni Johnsen formaður, Hjálmar Árnason, Jón Kristjánsson, Guðmundur Hallvarðsson, Arnbjörg Sveinsdóttir, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Lúðvík Bergvinsson og Kristján L. Möller.