Stofnun hlutafélags um rekstur Póst- og símamálastofnunar

Fimmtudaginn 06. apríl 2000, kl. 20:07:25 (6093)

2000-04-06 20:07:25# 125. lþ. 94.17 fundur 289. mál: #A stofnun hlutafélags um rekstur Póst- og símamálastofnunar# (stimpilgjald) frv. 19/2000, Frsm. meiri hluta ÞKG (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 94. fundur, 125. lþ.

[20:07]

Frsm. meiri hluta samgn. (Þorgerður K. Gunnarsdóttir) (andsvar):

Herra forseti. Ég ætla einungis að ítreka þá ósk mína og von að ríkisstjórnin láti verða af því að selja Landssímann sem fyrst og helst Íslandspóst líka. Greinargerðin út af fyrir sig gerir ekki útslagið um ákvörðun um slíka sölu, en eins og ég segi, ég ætla rétt að vona að ríkisstjórnin beri þá gæfu að selja Landssímann sem fyrst.