Frsm. meiri hluta iðnn. (Hjálmar Árnason) (andsvar):
Herra forseti. Það er nú svo með málflutning hv. síðasta ræðumanns að hann er ekki alltaf jafnmálefnalegur og kemur það nú fram í þessu máli eins og oft áður.
Hér sagði ég áðan að það hefði komið fram í starfi nefndarinnar, herra forseti, að þetta fyrirtæki hefði verið stofnað. En ég gat þess í framhaldi af því að mér hefðu svo borist þær upplýsingar ... (ÁRJ: Nefndinni.) Ég bið hv. þm. um að bíða --- hún getur komið aftur í andsvar --- og fletta nú upp þegar þingtíðindi verða gefin út. En þetta er svo sem ekki í fyrsta sinn sem hv. þm. gerir sig seka um fara beinlínis með rangt mál og flækja sig í einhverjum samsæriskenningum.
Hér er verið að blekkja. Ég ítreka það sem ég nefndi áðan að við erum að taka ákvörðun um almenn prinsipp. Ef þingmaðurinn telur að verið sé að blekkja, ef þingmaðurinn telur að verið sé að fremja lögbrot, ef þingmaðurinn telur að verið sé að brjóta samkeppnislög þá á þingmaðurinn einfaldlega að leggja fram kæru. Það hefur ekki með störf Alþingis að gera.
Ef hv. meiri hluti iðnn. er í blekkingarleik þá hljóta líka að vera í einum allsherjarblekkingarleik þeir umsagnaraðilar sem komu á fund nefndarinnar, m.a. fyrirtæki á fjarskiptamarkaði sem eindregið mæla með því að Landsvirkjun fái þessa almennu heimild til þess að geta nýtt búnaðinn sjálfum sér og neytendum til hagsbóta. En það kann vel að vera og kæmi mér svo sem ekkert á óvart þó að hv. þm. teldi það vera blekkingarleik og að fjarskiptamarkaðurinn sé bara ein allsherjarblekking. En ég bið hv. þm. um að fara með rétt með.