Rannveig Guðmundsdóttir (andsvar):
Herra forseti. Það kemur mér ekki á óvart að hv. formaður iðnn. leggur mest upp úr formsatriðum varðandi iðnn. Þess vegna ætla ég að láta það koma fram að þó að aðeins tveir þingmenn hafi mótmælt því að málið væri afgreitt úr nefndinni eru það eingöngu sex þingmenn sem skrifa undir þetta nál. og eru með á því. Það er mikilvægt að það komi fram.
Hæstv. forseti. Við erum að tala um tvö fyrirtæki. Við erum að tala númer eitt um fyrirtæki sem verður 100% í eigu Landsvirkjunar og sem er um ljósleiðarann og dreifikerfið þar sem þeir ætla að leigja aðilum aðgang að, hvort sem það fyrirtæki sem leigir aðganginn heitir Irja eða eitthvað annað.
Það er ekki fyrirtækið sem er að sækja um hjá Póst- og fjarskiptastofnun. Fyrirtækið sem er að sækja um hjá Póst- og fjarskiptastofnun heitir TNet og er bara allt annað. Það er fyrirtæki um að reka farsímakerfi hér og vill komast inn á neyðar- og öryggistíðnibandið hjá Póst- og fjarskiptastofnun. Það er sagan sem ég var eð rekja hér. Hún er um sögu Landsvirkjunar og TNets og ákefð þeirra að fá þetta öryggiskerfi sem þeir sóttust í í fyrra og fengu ekki. Það kemur hinu málinu ekkert við, fyrirtækinu sem verður 100% í eigu Landsvirkjunar og leigir aðgang að línum sínum.
Það er mikilvægt að menn fari að tala um þessi tvö fyrirtæki aðskilið.