Ásta R. Jóhannesdóttir (andsvar):
Herra forseti. Vissulega erum við að fjalla um TETRA-kerfið. Þetta snýst um það. Þetta snýst um öryggismál og um það að Landsvirkjun þolir ekki að hafa orðið undir í útboði og ætlar að kæfa litla fyrirtækið sem varð hlutskarpara og er búið að gera samning við lögregluna og slökkviliðið. Það er raunverulega ástæðan fyrir frv. Og ég held að stjórnarliðar verði að horfast í augu við það sem hér er á ferðinni. Nákvæmlega það sama er að gerast nú og þegar frv. kom fram um að Eimskip ætti að sjá um flutningana fyrir varnarliðið og drepa átti niður Atlantsskip. (Gripið fram í: Hvar stendur ...?) Það er túlkun mín á þessu máli að verið sé að gera nákvæmlega það sama, þ.e. verið er að gera stóra fyrirtækinu Landsvirkjun kleift að koma inn á þennan markað og drepa niður þá sem þar eru fyrir. Það er vandamálið sem við stöndum frammi fyrir. Við sjáum fram á að það verður tvöfalt öryggiskerfi, sem er mjög bagalegt, því stefnt hefur verið að því leynt og ljóst að koma á einu kerfi til að standa að öryggismálum hér á landi.