Atvinnuréttindi útlendinga

Mánudaginn 10. apríl 2000, kl. 19:26:08 (6312)

2000-04-10 19:26:08# 125. lþ. 96.35 fundur 261. mál: #A atvinnuréttindi útlendinga# (undanþágur) frv. 41/2000, RG (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 96. fundur, 125. lþ.

[19:26]

Rannveig Guðmundsdóttir (andsvar):

Herra forseti. Ég geri mér fullkomlega grein fyrir þessu og ég mun eins fulltrúar Samfylkingarinnar í félmn. styðja frv. og hjálpa til við að gera það að lögum. Það breytir ekki þeirri afstöðu minni að það þarf að gera miklu meira og að við erum í vanda. Þetta er eitt skref, það hjálpar eitthvað en þetta leysir ekki þann vanda sem við stöndum frammi fyrir. Allt sem ég hef sagt í fyrri ræðu minni stendur en ég mun styðja þetta mál.