Frsm. meiri hluta utanrmn. (Tómas Ingi Olrich):
Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. um frv. til laga um framkvæmd tiltekinna þátta í varnarsamstarfi Íslands og Bandaríkjanna. Nál. er frá meiri hluta utanrmn.
Nefndin hefur fjallað um málið og kallað á fund sinn allmarga aðila eins og greint er frá í nál. en umsagnir og gögn bárust nefndinni frá Sjómannafélagi Reykjavíkur, Budweiser-umboðinu, Atlantsskipum ehf. og Eimskipafélagi Íslands.
Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að tekið verði með heildstæðum hætti á ýmsum málum sem tengjast varnarsamstarfi Íslands og Bandaríkjanna, einkum viðskiptum íslenskra aðila við varnarliðið. Miðað er að því að festa í sessi þá þróun sem orðið hefur á síðustu árum í verktöku fyrir varnarliðið og setja lagareglur um það umhverfi. Enn fremur er lagt til, í samræmi við þær kröfur sem gerðar eru til nútímalegra stjórnarhátta, að treystur verði lagagrunnur fyrir stjórnsýsluna á varnarsvæðunum. Þá er í frumvarpinu að finna skýr og ótvíræð ákvæði um starfsemi kaupskrárnefndar varnarsvæða og ákvæði um heimildir utanríkisráðherra til að takmarka aðgang að varnarsvæðunum sem hingað til hafa einungis verið byggðar á ákvæðum loftferðalaga. Þá er og að finna ákvæði um undanþágu varnarliðsins frá skattskyldu sem ætlað er að skýra óvissu sem verið hefur í framkvæmd og sett er traustari lagastoð fyrir skattfrelsi Ratsjárstofnunar. Með því er ekki verið að víkka út eða breyta á annan hátt núverandi undanþágu stofnunarinnar frá greiðslu skatta og gjalda.
Meiri hlutinn leggur til að frumvarpið verði samþykkt með breytingum sem lagðar eru til í sérstöku þskj. og eru skýringar í nál.
Undir þetta nál. skrifa Tómas Ingi Olrich, Jón Kristjánsson, Jónína Bjartmarz, Lára Margrét Ragnarsdóttir og Einar K. Guðfinnsson.