Ögmundur Jónasson (andsvar):
Herra forseti. Hæstv. utanrrh. segir að þetta mál byggi allt á víðtækri sátt sem allir flokkar hafi komið að og vísar þar til starfs á fyrra þingi. Staðreyndin er sú að Vinstri hreyfingin -- grænt framboð kom ekki að þeirri sátt eða því samkomulagi.
Þessar breytingar sem verið er að ráðast í byggja á breytingu á stjórnarskrá Íslands. Til þess að slík breyting nái fram að ganga þarf hún að vera samþykkt á tveimur þingum. Hvernig skyldi standa á því að tvö þing þurfi til að koma í gegn stjórnarskrárbreytingum? Það er vegna þess að menn vilja tryggja að ekki verði gert samkomulag á milli þinga, að um slíkar breytingar sé það mikil sátt að tvö óháð þing samþykki breytingarnar óháð slíku samkomulagi sem hæstv. utanrrh. vísar til. Ég verð að segja að um fá mál ríkir eins mikil óánægja í landinu og þær breytingar sem verið er að gera á kjördæmaskipan. Ég vísa því til föðurhúsanna að menn geti réttlætt þetta í ljósi einhverrar víðtækrar sáttar milli stjórnmálaflokkanna.
Í þeirri nefnd sem hefur fjallað um málið nú og skiptingu landsins í kjördæmi er klofningur og það hefur margoft komið fram í umræðu um þessi mál að mikil óánægja er um þau á meðal þingmanna. Ég ítreka, herra forseti, að ég tel að þær breytingar sem verið er að ráðast í byggi ekki á víðtækri sátt, hvorki í landinu né innan Alþingis. Ég hafna því þessari söguskýringu hæstv. utanrrh.